Parket er okkar mál!

Parketslípun, parketlökkun, parketlagnir,
og parketviðgerðir.

Parketslípun - Parketlökkun - Parketlagnir

Við sérhæfum okkur í allri meðferð parket- og viðargólfa. Hvort heldur er parketlögn, parketslípun, parketlökkun og parketviðgerðir eða ef um er að ræða olíuborið parket sem og önnur viðargólf. Við þjónustum jafnt heimili, fyrirtæki, íþróttafélög og opinberar stofnanir.

Parketslípun

Endurnýjaðu parketið án þess að skipta um það.

Ef þú ert með parket þá þarf á einhverjum tímapunkti að endurnýja það. Gera má ráð fyrir að parket tapi útlitsgæðum á um 10-15 árum eftir álagi. Ein leið til þess að endurnýja parketið er að slípa það upp og endurnýja yfirborð þess.

Parketslípun er einföld lausn að því gefnu að parketið sé ekki of illa farið. Að lokinni parketslípun eru ýmsar leiðir færar í yfirborðsmeðhöndlun til að gera parketið glæsilegt á ný.

Vantar þig aðstoð, er parketið orðið slitið? Vantar þig parketslípun?

Hafðu samband og við skoðum með þér hvaða kostir eru í stöðunni.

Pallaslípun

Er kominn tími á sólpallinn?

Er pallurinn orðinn veðraður eða bara óhreinn? Ef pallurinn er farinn að veðrast, olían gengin upp úr honum, viðurinn farinn að springa og grána getur verið nauðynlegt að slípa og olíubera viðinn aftur.

Í sumum tilfellum getur verið nægjanlegt að þvo og hreinsa burtu gróður, sót og önnur óhreinindi og olíubera aftur til þess að endurheimta útlit pallsins.

Parketlögn

Þarftu að láta leggja nýtt gólfefni?

Við tökum að okkur að leggja helstu gerðir gólfefna sem hafa það sameiginlegt að vera skilgreind sem parket s.s.

  • Gegnheilt parket
  • Fljótandi parket
  • Vínilparket
  • Harðparket


Við höfum mikla reynslu og leggjum okkur fram um að veita góða þjónustu.

Hafa samband

Sendu okkur línu.

Parketbræður ehf

+354 777 2527

Fylgdu okkur á:

Copyright © Parketbræður ehf